![]() |
|||||||||
Vitar og leiðsaga Fyrsti vitinn við strendur Íslands var byggður á Reykjanesi árið 1878. Um síðustu aldamót voru vitarnir 5 að tölu en uppbyggingu vitakerfisins lauk með byggingu Hrollaugseyjavita árið 1954 en þá var ljósvitahringnum um landið lokað. Í dag er fjöldi ljósvita við strendur landsins alls 104. Rekstur og eignarhald vitakerfisins er tvískipt. Landsvitar eru til leiðbeiningar á almennum siglingaleiðum en hafnarvitar vísa leið inn á hafnir. Landsvitar eru í eigu og umsjón ríkisins en hafnarvitar í eigu og umsjón sveitarfélaganna. Í lögum um vitamál og í hafnalögum er kveðið á um að Siglingastofnun hafi með höndum framkvæmd vitamála, þ.e. uppbyggingu og rekstur landsvitakerfisins og umsjón og efitirlit með uppbyggingu og rekstri hafnarvita og innsiglingamerkja. Vita- og leiðsögubúnaður stofnunarinnar er margþættur. Tækniframfarir hafa breytt samsetningu og sjálfvirkni búnaðarins verulega undanfarna áratugi. Af ljósvitunum 104 sem eru í umsjá stofnunarinnar fá flestir orku sína frá rafmagni, samveitum eða geymum en 41 viti er knúinn með sólarorku. Aðeins einn, Hvaleyrarviti í Hvalfirði, er enn með gasljósi. Starfsmenn stofnunarinnar sinna viðhaldi vitanna og þarf að leigja skip annað hvert ár til að sinna viðhaldi bauja og þeirra vita sem ekki er hægt að nálgast frá landi. Annar leiðsögubúnaður er baujur (ljósdufl), radarsvarar, öldumælingadufl og sjálfvirkar veðurstöðvar. Öldumælingaduflum og veðurstöðvum hefur fjölgað undanfarin ár í tengslum við uppbyggingu á upplýsingakerfi Siglingastofnunar um veður og sjólag. Baujum og radarsvörum hefur hins vegar farið fækkandi með tilkomu nýrrar tækni. Einungis 6 radíóvitar eru í rekstri og eru þeir fyrst og fremst notaðir til að senda út leiðréttingarmerki með GPS-staðsetningarkerfinu, þ.e. DGPS-kerfið. Ljósdufl/baujur eru nú 9 talsins og hefur fækkað nokkuð síðustu ár. Betri siglingatæki hafa leyst þau af hólmi. Stofnunin er með 16 radarsvara í rekstri. Radarsvörum er komið fyrir þar sem landslagi er þannig háttað að erfitt er að ná fram endurvarpi á ratsjá. Hafnarvitakerfið er byggt upp af tæplega 20 ljósvitum, um 90 innsiglingarljósum á garðsendum og bryggjum, rúmlega 80 leiðarljósalínum og tæplega 50 baujum er vísa leið í innsiglingum að höfnum. Í fréttabréfi stofnunarinnar Til sjávar, 3. tbl. 1999, var frásögn úr ferð í afskekkta vita. Þessa frásögn er einnig að finna hér. |
|||||||||
|
|||||||||