--------------------------------------------- Forsíða
Vita- og leiðsögumál
Vitar og leiðsaga
Vitakort
Frásögn úr vitaferð
Veður og sjólag

DGPS

GPS er bandarískt gervihnattastaðsetningarkerfi sem byggir á sendingum frá a.m.k. 24 gervihnöttum. Kerfið gefur möguleika á staðsetningu á láði, legi og í lofti en er einnig notað til sérhæfðari hluta s.s. landmælinga og tímaviðmiðunar.

Kerfið er tvískipt. Annars vegar er hernaðarhlutinn sem er lokaður öðrum en bandarískum stjórnvöldum og NATO. Hins vegar er almenni hlutinn sem allir hafa aðgang að og gefur staðsetningu með a.m.k. 20 metra nákvæmni.

Til að auka nákvæmni GPS-kerfisins hefur Siglingastofnun komið upp leiðréttingarkerfi, svokölluðu DPGS-kerfi, sem gerir notendum við Ísland kleift að staðsetja sig með 1-10 metra nákvæmni.  Leiðréttingarkerfið eykur einnig heilleika GPS-kerfisins þar sem bilun í gervihnetti er hægt að uppgötva fyrr í leiðréttu kerfi en GPS-kerfi.

Leiðréttingarmerki eru send út frá 6 radíóvitum umhverfis landið, þ.e. frá Reykjanesvita, Bjargtangavita, Skagatáarvita, Raufarhafnarvita, Djúpavogsvita og Skarðsfjöruvita. Sent er á langbylgju nálægt 300 kHz senditíðni. Leiðréttingarmerkin eru numin með sérstökum móttakara,sem tengdur er við GPS-tækið.

Leiðréttingarmerkin nást í 200 til 400 sjómílna fjarlægð. Þau eru miklu næmari fyrir truflunum en GPS-merkin og geta t.d. horfið í truflunum sem fylgja éljagangi.

Til að auka útbreiðslu og minnka hættu á truflunum var sendingartíðni merkjanna breytt í allri Evrópu haustið 2001. Í töflunni hér á eftir gefur að líta senditíðni DGPS-kerfis Siglingastofnunar.

Upplýsingar um tíðni DGPS í Evrópu má finna hér.

Almanak radíóvita

Staður Staðsetning Kennitala Senditíðni/ kHz
Reykjanes

N 63° 48,934

W 22° 42,263

411 293,5
Bjargtangar N 65° 30,152 W 24° 31,892 412 300,0
Skagatá N 66° 07,158 W 20° 05,923 413 289,0
Raufarhöfn N 66° 27,010 W 15° 57,252 414 289,5
Djúpivogur N 64° 39,145 W 14° 16,602 415 291,0
Skarðsfjara N 63° 31,067 W 17° 58,727 416 287,0

Sendihraði: 100 baud  Mótunaraðferð: MSK  Sendiaðferð: skv. staðli RTCM SC-104 ver.2.0.
Langdrægi til hafs er áætlað 200-400 sjómílur. Langdrægi til lands er áætlað 150-200 km.

Skeytasendingar:
Skeyti 3: staðsetning leiðréttingarstöðvar      skeyti 7: almanak radíóvita
skeyti 9: leiðrétting          skeyti 16: stuttar viðvaranir til DGPS-notenda

 

 


©  Siglingastofnun Íslands