---------------------------------------------
Veður og sjólag

 

Rannsóknir

Markmiðið með upplýsingakerfinu um veður og sjólag er að auka öryggi sjómanna og gera búsetu við sjávarsíðuna öruggari. Þegar spáð er aftökum eru sendar upplýsingar til hlutaðeigandi eins og Veðurstofu Íslands, sjófarenda, hafnaryfirvalda, forsvarsmanna strandsvæða og almannavarna.

Áfram verður unnið að þróun kerfisins á næstu árum en það er eitt af fjölmörgum rannsókna- og þróunarverkefnum stofnunarinnar. Upplýsingakerfið hefur verið þróað í náinni samvinnu við verkfræðistofurnar Hugrúnu, VSG og Veðurstofu Íslands. Einnig hefur verið góð samvinna við sjómenn.

Í dag er að finna eftirfarandi upplýsingar í upplýsingakerfinu um veður og sjólag:

  • Veður og sjólag frá ölduduflum og vitum
  • Veður og sjávarstaða í höfnum
  • Ölduhæðir utan og innan hafna

Reynslan sýnir að þegar veður fer versnandi eða er að ganga niður koma upplýsingarnar að mestu gagni þegar þær eru bornar saman við sjóveðurspá Veðurstofu Íslands. Í samvinnu við hana er stefnt að sameiginlegri vefsíðu þar sem veittar verða ítarlegar upplýsingar um aðstæður í höfnum, við ströndina, á landgrunninu og á hafinu umhverfis Ísland.

Þegar upplýsingakerfið verður fullbúið mun það einnig miðla upplýsingum og aðvörunum um eftirfarandi þætti:

  • Sjávarföll og sjávarfallastrauma.
  • Sjávarflóð.
  • Ölduhæðir næstu daga.
  • Öldur og strauma í röstum og á grunnsævi.
  • Öryggismörk minni fiskiskipa
  • Reikniforsendur fyrir rek á gúmmíbátum, fljótandi hlutum og olíu.
  • Ennfremur er hugað að því að senda út upplýsingar um hættu á ísingu.

Haldið verður áfram að byggja upp upplýsingakerfið með rauntímamælingum á veðri, öldu og á sjávarborði, sem er grunnurinn að sjávarfalla- og sjávarflóðaspám, en þau verkefni eru unnin í samvinnu við verkfræðistofuna VST, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands.