---------------------------------------------
Veður og sjólag

 

Upplýsingakerfið

Upplýsingakerfi Siglingastofnunar um veður og sjólag býður notendum upp á nýjar upplýsingar á klukkustundarfresti um veður og sjólag við strendur Íslands. Einnig er að finna spár nokkra daga fram í tímann um veður og sjólag við Ísland og á Norður-Atlantshafi.

Nýjungar / breytingar:

  • Nóvember 1999. Hægt er að nálgast gögn frá veðurstöðvum og ölduduflum í formi textaskrár til að auðvelda aðgengi sjómanna að rauntímaupplýsingum um veður og sjólag.
  • Þann 1. júní 1999 tók gildi sú breyting að í stað þess að mæla vind í vindstigum er hann nú mældur í metrum á sekúndu (m/s). Sjá nánari útskýringar hjá Veðurstofu.
  • Á Íslandskortinu er bæði gefinn upp meðalvindhraði og hæsta vindhviða síðustu 10 mínútur, t.d. A 9-12, þýðir: Austan 9 m/s meðalvindhraði og 12 m/s hæsta vindhviða síðustu 10 mínútur.

Það skal tekið fram að Siglingastofnun Íslands ábyrgist á engan hátt að þau gögn sem hér má finna séu ætíð aðgengileg og uppfærð. Siglingastofnun Íslands er ekki undir nokkrum kringumstæðum ábyrg fyrir skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á heimasíðu og símsvara hennar.

 

 

 

Síðast breytt 16.11.2002