--------------------------------------------- Forsíða

Siglingastofnun Íslands er framsækin þjónustustofnun sem vinnur að öryggi sjófarenda og aukinni hagkvæmni til sjósóknar.

Með sérfræðiþekkingu og skilvirkri miðlun upplýsinga um málefni hafna og siglinga þjónar Siglingastofnun stjórnvöldum, sjófarendum og útgerðarmönnum.

Siglingastofnun Íslands er virkur þátttakandi í mótun heildarstefnu stjórnvalda um samgöngur, skip, hafnir, strandlengju og umhverfismál sjávar.

Stofnunin leggur áherslu á að tryggja að sérfræðiþekking og reynsla starfsmanna leggi góðan grunn að opinberum kröfum um málefni sjávar og sjófarenda. Á sama tíma stendur stofnunin öruggan vörð um að þessar kröfur séu uppfylltar.

Siglingastofnun vinnur einnig að því að tryggja að sjónarmið íslenskra útgerðarmanna og sjófarenda fái hljómgrunn í alþjóðlegu samstarfi þannig að sérhæfð þekking og reynsla af íslenskum aðstæðum endurspeglist í alþjóðlegum reglum um siglingamál.


Síðast uppfært: 16.09.2002

© 2000, Siglingastofnun Íslands