![]() |
||
|
Í gæðaráði Siglingastofnunar eru: Hermann
Guðjónsson, Gæðastefna Siglingastofnunar Íslands Það
er stefna Siglingastofnunar Íslands að tryggja öryggi og velferð sjófarenda,
ásamt því að koma í veg fyrir að hafið og auðlindir þess spillist
af völdum mengunar frá skipum. Stofnunin
veitir viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu og tryggir aðgang að
upplýsingum og þekkingu sem eru á verksviði hennar með gæði að leiðarljósi. Stofnunin
og starfsmenn hennar munu leitast við að halda uppi réttum gæðum og
tryggja að fyllsta hlutleysis sé gætt. Þannig verði mætt væntingum viðskiptavina
og stjórnvalda. Stofnunin
mun kappkosta að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki og viðurkenndum
aðföngum. Stofnunin
leggur áherslu á menntun og þjálfun starfsfólks til að viðhalda réttum
gæðum og aukinni gæðavitund. Stofnunin
beitir sér fyrir því að starfsmenn sýni gott viðmót og veiti góða
þjónustu. Stofnunin
stuðlar að því að aðgengi allra starfsmanna að almennum upplýsingum
um reksturinn sé gott.
|
||
|
||